Fréttir

PGA: Thomas og Lee í sérflokki á CJ Cup
Justin Thomas.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
laugardaginn 19. október 2019 kl. 09:49

PGA: Thomas og Lee í sérflokki á CJ Cup

Þriðji dagur CJ Cup @ Nine Bridges mótins fór fram í nótt. Það eru þeir Justin Thomas og Danny Lee sem eru í efsta sæti fyrir lokahringinn og eru þeir þremur höggum á undan næsta manni.

Thomas sem var höggi frá nýju vallarmet á öðrum degi mótsins þegar að hann lék á 63 höggum fylgdi því eftir með hring upp á 70 högg í nótt. Á hringnum fékk hann fimm fugla, þrjá skolla og restina pör. Lee er aftur á móti búinn að leika nokkuð stöðugt golf alla hringi mótsins. Fyrstu tvo hringina lék hann á 66 og 67 höggum. Hann lék svo á 68 höggum í gær, eða fjórum höggum undir pari. Á hringnum fékk hann einn skramba, fjóra fugla, örn og restina pör.

Þeir félagar eru því á samtals 15 höggum undir pari, þremur höggum á undan Cameron Smith sem situr einn í þriðja sæti á 12 höggum undir pari. Smith lék á 68 höggum í gær. Höggi á eftir honum eru þeir Wyndham Clark og Jordan Spieth.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.


Danny Lee.