Fréttir

PGA: Tveir jafnir í Mexíkó
Danny Lee.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
laugardaginn 16. nóvember 2019 kl. 12:08

PGA: Tveir jafnir í Mexíkó

Eins og greint var frá í gær var fyrsta hring Mayakoba Golf Classic mótsins á PGA mótaröðinni frestað. Fyrsti hringur mótsins fór því fram í gær og var það Danny Lee sem lék besta allra.

Lee kom í hús á 62 höggum, eða níu höggum undir pari. Hann fékk einn skolla á hringnum í gær en á móti fékk hann átta fugla, einn örn og restina pör. 

Annar hringur mótsins hófst nú fyrir skömmu og er Mark Hubbard á tveimur höggum undir pari á öðrum hringnum og er hann nú orðinn jafn Lee sem á enn eftir að hefja leik.

Brendon Todd og Adam Long eru jafnir í þriðja sæti á átta höggum undir pari. Þeir leika saman í holli og hefja leik klukkan 12:30 að staðartíma, sem er 17:30 að íslenskum tíma.

Hér má sjá stöðuna í mótinu.