Fréttir

PGA: Wolff með þriggja högga forystu fyrir lokadaginn
Matt Wolff.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
laugardaginn 4. júlí 2020 kl. 22:14

PGA: Wolff með þriggja högga forystu fyrir lokadaginn

Bandaríkjamaðurinn Matt Wolff er í forystu eftir þrjá hringi á Rocket Mortgage Classic mótinu sem fer fram á PGA mótaröðinni.

Samtals er Wolff á 19 höggum undir pari en annan daginn í röð lék hann á 8 höggum undir pari.

Fyrir lokahringinn er Wolff þremur höggum á undan Ryan Armour og Bryson DeChambeau sem deila öðru sætinu á 16 höggum undir pari.

Takist Wolff að sigra á sunnudaginn verður það annar sigur Wolff sem varð 21 árs gamall í apríl.

Troy Merritt, Mark Hubbard, Chris Kirk og Sean Power deila fjórða sætinu á 14 höggum undir pari.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.