Reykjavík Junior Open haldið á Grafarholtsvelli
Reykjavík Junior Open 2019 verður haldið í fyrsta sinn á Íslandi helgina 31. ágúst - 1. september. Um er að ræða tveggja daga opið mót sem ætlað er ungmennum yngri en 21 árs.
Leikfyrirkomulag mótsins er höggleikur og höggleiksafbrigði en keppt verður í sex flokkum og verðlaun veitt fyrir 1. – 3. sæti í hverjum flokki. Þar að auki verða nándarverðlaun veitt á öllum par 3 brautum vallarins báða daga ásamt verðlaunum fyrir lengsta teighögg á 3. braut báða daga.
Skráning í mótið hófst í dag og lýkur á miðnætti þriðjudaginn 27. ágúst.
Innifalið í mótsgjaldi er:
- 50 upphitunarboltar í Básum báða daga
- Glæsileg teiggjöf til minningar um þátttöku í Reykjavík Junior Open
- Máltíð í golfskálanum að leik loknum á seinni keppnisdegi mótsins
- Lokahóf verður nánar auglýst síðar
Mótið er flokkaskipt eftir aldri og kyni, keppt verður í eftirfarandi keppnisflokkum:
12 ára og yngri stelpur – Rauðir teigar – 36 holur – Höggleiksafbrigði
12 ára og yngri strákar – Rauðir teigar – 36 holur – Höggleiksafbrigði
13 – 16 ára stelpur – Bláir teigar – 36 holur – Höggleikur
13 – 16 ára strákar – Gulir teigar – 36 holur – Höggleikur
17 – 21 árs stúlkur – Bláir teigar – 36 holur – Höggleikur
17 – 21 árs piltar – Hvítir teigar – 36 holur – Höggleikur
Hámarsfjöldi í strákaflokkum miðast við 30 keppendur og 15 keppendur í stelpuflokkum.