Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Rory beitir sömu aðferðarfræði og Tiger
Fimmtudagur 3. maí 2012 kl. 08:09

Rory beitir sömu aðferðarfræði og Tiger

Norður-Írinn Rory McIlroy er farinn að beita sömu aðferðafræði og Tiger Woods þegar kemur að fjölda móta sem hann tekur þátt í á ári hverju. McIlroy mun leika í 23 mótum í ár en það er sjö mótum færra en á síðasta ári. Woods hefur um árabil aðeins tekið þátt í stærstu mótum ársins og leikið í rétt um 20 mótum.

„Ég vil ekki vera útbrunninn þegar ég verð þrítugur. Ég vil eiga eins langan feril og ég mögulega get og stundum geng ég of langt, sérstaklega í lok leiktíðar. Mikilvægasti tími ársins hefst í apríl og stendur þar til í endann ágúst. Þetta er tíminn þegar öllu stóru mótin fara fram og þá viltu leika þitt besta golf,“ sagði McIlroy á blaðamannafundi í gær fyrir Wells Fargo mótið á PGA-mótaröðinni sem hefst í dag.

„Það er krefjandi tímabil að hefjast og ég vil leika vel í næstu mótum og byggja ofan á þá frammistöðu fyrir Opna bandaríska. Ég hef verið gagnrýndur fyrir að spila minna en aðrir kylfingar að undanförnu en ég veit að nú kemur mikilvægt tímabil og ég vil vera ferskur fyrir þessi mót.“