Ryder lið Bandaríkjanna tilkynnt
Steve Stricker fyrirliði Bandaríkjanna í Ryder bikarnum tilkynnti í dag endanlegt lið sitt fyrir keppnina sem hefst 24. september á Whistling Straits vellinum í Wisconsin heimafylki Strickers.
Sex leikmenn höfðu þegar spilað sig inn í liðið og Stricker fékk að velja sex leikmenn til viðbótar.
Þeir sex sem spiluðu sig inn í liðið í gegnum stigalistann eru Collin Morikawa, Dustin Johnson, Bryson DeChambeau, Brooks Koepka, Justin Thomas og Patrick Cantley.
Steve Stricker valdi síðan Daniel Berger Harris English, Tony Finau, Xander Schauffele, Scottie Scheffler og Jordan Spieth.
Ógnar sterkt en ungt lið með Dustin Johnson sem aldursforseta aðeins 37 ára að aldri.