Fréttir

Samsung Unglingaeinvígið í Mosó fer fram á föstudaginn
Ragnar Már Ríkarðsson hefur titil að verja í mótinu.
Fimmtudagur 13. september 2018 kl. 18:09

Samsung Unglingaeinvígið í Mosó fer fram á föstudaginn

Samsung-Unglingaeinvígið fer fram á Hlíðavelli föstudaginn 14. september. Þetta er í 14. sinn sem Unglingaeinvígið er haldið, en mótið er á vegum Golfklúbbs Mosfellsbæjar.

Samsung-Unglingaeinvígið er boðsmót þar sem leikmenn vinna sér inn þátttökurétt með góðum árangri á Íslandsbankamótaröð GSÍ yfir sumarið auk þess sem klúbbmeisturum GM er boðin þátttaka. Keppendalista mótsins má nálgast með því að smella hér.

Undankeppnin hefst kl. 12:30 á föstudaginn en þá mæta til leiks 10 kylfingar í hverjum aldursflokki.

Þrír komast áfram úr hverjum flokki í lokaeinvígið sem hefst um kl. 16:00.

Mótið er leikið eftir svokölluðu shoot out fyrirkomulagi þar sem 10 leikmenn hefja leik og dettur einn leikmaður út á hverri holu þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.

Sigurvegarar mótsins frá upphafi eru:

2005 – Sveinn Ísleifsson
2006 – Guðni Fannar Carrico
2007 – Andri Þór Björnsson
2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson
2009 – Andri Már Óskarsson
2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir
2011 – Ragnar Már Garðarson
2012 – Aron Snær Júlíusson
2013 – Ingvar Andri Magnússon
2014 – Ingvar Andri Magnússon
2015 – Björn Óskar Guðjónsson
2016 – Henning Darri Þórðarson
2017 – Ragnar Már Ríkarðsson

Ísak Jasonarson
[email protected]