Fréttir

Sögulegur árangur hjá Jóhönnu Leu á breska áhugakvennamótinu
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir.
Laugardagur 12. júní 2021 kl. 22:37

Sögulegur árangur hjá Jóhönnu Leu á breska áhugakvennamótinu

Louise Duncan frá Skotlandi tryggði sér í dag sigur á breska áhugakvennamótinu þar sem hún lék gegn Jóhönnu Leu Lúðvíksdóttur úr GR í úrslitum. Með sigrinum tryggði Duncan sér keppnisrétt á fjórum risamótum hjá atvinnukylfingum, AIG mótinu, Opna bandaríska meistaramótinu, Evian meistaramótinu og Augusta National meistaramótinu.

Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur kylfingur keppir til úrslita á þessu sögufræga móti. Árangur Jóhönnu Leu er einstakur í golfsögu Íslands. Alls tóku þrír íslenskir kylfingar þátt á þessu móti. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, lék best allra í höggleikskeppninni en féll úr leik í 1. umferð holukeppninnar. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, endaði í 12. sæti í höggleikskeppninni og mætti Jóhönnu Leu í 1. umferð holukeppninnar.

Duncan endaði í 7. sæti í höggleikskeppninni en hún er í sæti nr. 415 á heimslistanum en hefur farið hæst í sæti nr. 269.

Leikið var á Kilmarnock, Barassie, í Skotlandi og var þetta í 118. sinn sem mótið fer fram.

Keppnisfyrirkomulagið var með þeim hætti að fyrst voru leiknar 36 holur með höggleiksfyrirkomulagi – 64 efstu kylfingarnir komast áfram í næstu umferð þar sem að holukeppni tekur við. Í holukeppninni eru leiknar 18 holur í hverri umferð en úrslitaleikurinn er 36 holur.

Þrír íslenskir keppendur frá Íslandi tóku þátt og komust þær allar í gegnum höggleikskeppnina þar sem að 64 efstu af alls 95 keppendum fóru áfram. Mótið er hluti af keppnisdagskrá R&A í Skotlandi.

Árangur Jóhönnu Leu er sá besti sem íslenskur kylfingur hefur náð á breska áhugakvennamótinu. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, varð í 13. sæti í höggleiknum árið 2017 en tapaði naumlega í 1. umferð holukeppninnar.
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, náði 29. sætinu í höggleiknum árið 2020 og komst í gegnum 1. umferðina í holukeppninni í bráðabana sem lauk á 20. holu. Hulda Clara tapaði síðan afar naumlega í 2. umferð holukeppninnar.

Jóhanna Lea var í harðri baráttu um að komast í hóp 64 efstu í höggleikskeppninni en hún endaði í 53. sæti.  

Jóhanna Lea var fyrir mótið í sæti nr. 944 á heimslista áhugakylfinga í kvennaflokki og má búast við því að hún taki risastökk á þeim lista þegar hann verður uppfærður í byrjun næstu viku. 

Í 1. umferð þar sem að 64 leikmenn tóku þátt var Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, mótherji Jóhönnu. Hulda Clara er í sæti nr. 353 á heimslistanum og endaði hún í sæti nr. 12 í höggleiknum. Hulda Clara hefur hæst farið í sæti nr. 325 á heimslistanu. Hulda Clara endaði í endaði í 12. sæti í höggleiknum en Jóhanna Lea hafði betur í þessum leik 2/0. 

2. umferð þar sem að 32 leikmenn tóku þátt var Hazel MacGarvie frá Skotlandi andstæðingur Jóhönnu Leu. MacGarvie er í sæti nr. 169 á heimslistanum og hefur hæst náð að fara í sæti nr. 68 á þeim lista. MacGarvie endaði í 21. sæti í höggleiknum en Jóhanna hafði betur gegn MacGarvie 2/1.

3. umferð þar sem að 16 leikmenn tóku þátt mætti fyrrum sigurvegari mótsins, Emily Toy frá Englandi, Jóhönnu. Toy er í sæti nr. 126 á heimslistanum og hefur farið hæst í sæti nr. 77 á þessum lista. Toy endaði í 5. sæti í höggleiknum en Jóhannna hafði betur 1/0 í viðureigninni. 

4. umferð þar sem 8 leikmenn tóku þátt var Írinn Kate Lanigan mótherji Jóhönnu. Lanigan hefur farið hæst í sæti nr. 645 á heimslistanum en hún er í sæti nr. 2605 þessa stundina. Lanigan var einu sæti fyrir ofan Jóhönnu í höggleiknum eða 52. sæti en Jóhanna hafði betur í 3/2 í viðureign þeirra. 

Í 5. umferð eða undanúrslitum mætti Jóhanna Skotanum Shannon McWilliam sem endaði í sæti nr. 32 í höggleiknum. McWilliam hefur hæst farið í sæti nr. 76 á heimslistanum en hún er í sæti nr. 174 þessa stundina.