Fréttir

Spenna fyrir lokahringinn á ISPS Handa World Invitational hjá báðum kynjum
Jordan Smith er efstur í karlaflokki
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
laugardaginn 31. júlí 2021 kl. 20:55

Spenna fyrir lokahringinn á ISPS Handa World Invitational hjá báðum kynjum

Mikil spenna er á báðum vígstöðum fyrir lokahringinn á ISPS Handa World Invitational á Írlandi.

Í karlaflokki leiðir Englendingurinn Jordan Smith á 15 höggum undir pari. Landi hans David Horsey er næstur höggi á eftir.

Staða efstu manna í karlaflokki:

Staðan í karlaflokki

Í kvennaflokki er enn meiri spenna þar sem þrír kylfingar deila efsta sætinu fyrir lokahringinn. Pajaree Anannarukarn frá Taílandi og bandarísku stúlkurnar Emma Talley og Jennifer Kupcho.

Staða efstu kvenna fyrir lokahringinn:

Staðan í kvennaflokki