Fréttir

Swafford sigraði í þriðja sinn
Hudson Swafford eftir sigurinn í gær.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
mánudaginn 24. janúar 2022 kl. 09:53

Swafford sigraði í þriðja sinn

Bandaríkjamaðurinn Hudson Swafford sigraði á American Express mótinu sem lauk í Kaliforníu í gærkvöldi. Þetta var hans þriðji sigur á PGA mótaröðinni.

Mikil spenna var á lokahringnum en fjölmargir kylfingar blöndðuð sér í toppbaráttuna. Swafford sigldi fram úr á lokasprettinum og hafði að lokum tveggja högga sigur. Swafford lék hringina fjóra á samtals 23 höggum undir pari.

Tom Hoge varð annar tveimur höggum á eftir og fjórir kylfingar deildu með sér þriðja sætinu á 20 höggum undir pari.

Lokastaðan í mótinu