Fréttir

Þekktir kylfingar minnast Kobe Bryant
Tiger Woods og Kobe Bryant voru fínir félagar.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
mánudaginn 27. janúar 2020 kl. 15:52

Þekktir kylfingar minnast Kobe Bryant

Skelfilegar fréttir af andláti Kobe Bryant, eins merkasta íþróttamanns sögunnar, komu eins og þruma úr heiðskíru lofti á sunndaginn. Fólk hvaðan að úr heiminum hefur undanfarnar klukkustundir minnst stórstjörnunnar á samfélagsmiðlum og eru þar þekktir kylfingar engar undantekningar.

Tiger Woods frétti af andláti félaga síns þegar hann kláraði lokahringinn á Farmers Insurance Open mótinu í gær og var hann eins og við var að búast í sjokki.

„Lífið er brothætt eins og við vitum,“ sagði Woods eftir hringinn. „Það getur klárast hvenær sem er og við verðum að njóta augnablikanna sem við höfum. Ég get ekki ímyndað mér hvað fjölskyldan hans er að ganga í gegnum núna.“

Ásamt Woods hafa kylfingar á borð við Jack Nicklaus, Brooks Koepka, Justin Thomas og fleiri minnst Bryant á samfélagsmiðlum sínum.