Fréttir

Þriðja og síðasta mót Haralds í Suður-Afríku
Haraldur Franklín Magnús.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
miðvikudaginn 5. maí 2021 kl. 20:19

Þriðja og síðasta mót Haralds í Suður-Afríku

Haraldur Franklín Magnús hefur leik á morgun á Dimension Data Pro-Am mótinu en mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni. Mótið er leikið á Fancourt Golf Estate svæðinu í Suður-Afríku en þetta þriðja mótið í röð sem Haraldur tekur þátt í sem er haldið í Suður-Afríku.

Fyrstu tvö mótinu komst Haraldur ekki í gegnum niðurskurðinn en fær nú tækifæri að enda dvölina í Suður-Afríku á góðum nótum.

Hann hefur leik á morgun klukkan 8:35 að staðartíma, sem er 6:35 að íslenskum tíma, og byrjar hann á 10. braut. Með honum í holli er heimamennirnir Makhetha Mazibuko og Heinrich Bruiners. Leikið er á tveimur völlum og leikur Haraldur á Montagu vellinum á morgun. Á föstudag leikur hann svo á Outeniqua vellinum.

Hérna má fylgjast með skori keppenda.