Fréttir

Valdís Þóra reynir við LPGA mótaröðina
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 21. ágúst 2019 kl. 20:15

Valdís Þóra reynir við LPGA mótaröðina

Valdís Þóra Jónsdóttir GL hefur á morgun leik á úrtökumóti fyrir LPGA mótaröðina. Um er að ræða fyrsta stig úrtökumótanna af þremur.

Leikið er á þremur völlum í mótinu og verður skorið niður eftir þrjá hringi. Þeir kylfingar sem halda áfram í gegnum niðurskurðinn leika svo fjórða hringinn og berjast þá um að minnsta kosti 60 laus sæti á næsta stig.

Vellirnir sem keppt er á eru Palmer og Dinah Shore vellirnir hjá Mission Hills golfklúbbnum og Palm Desert völlurinn hjá Shadow Ridge golfklúbbnum en þeir eru allir staðsettir í Kaliforníu. Allir kylfingar mótsins spila einn hring á hverjum velli fyrstu þrjá dagana og þeir sem komast áfram leika lokahringinn á Dinah Shore vellinum.

Valdís Þóra hefur undanfarna daga leikið æfingahringi í Kaliforníu en á staðnum er mikill hiti og því var hún ánægð að fara snemma af stað á morgun.

„Hitinn er mikill hérna, vel yfir 40 gráður, og því flott að fá fyrsta hring að morgni til.“ sagði Valdís á Facebook síðu sinni.

Valdís fer af stað klukkan 7:45 að staðartíma eða kl. 14:45 að íslenskum tíma og leikur með þeim Mathilda Cappeliez og Tess Hackworthy á Dinah Shore.

Hér verður hægt að fylgjast með skori keppenda í beinni.