Fréttir

Varner III í vandræðum fyrir fyrsta mótið sitt eftir brúðkaup
Harold Varner III.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
miðvikudaginn 28. október 2020 kl. 20:22

Varner III í vandræðum fyrir fyrsta mótið sitt eftir brúðkaup

Það er ekki algengt að fólk ræði vandamál sem fylgja því að giftast, ef þau eru einhver en það er ekki alveg hægt að segja um Harold Varner III sem gifti sig nýlega. 

Varner III giftist langtíma kærustu sinni Amöndu Singleton 26. september síðastliðinn. Í viðtali fyrir Bermuda Championship mótið á PGA mótaröðinni tjáði Varner III sig um eitt ákveðið vandamál sem hefur fylgt honum frá giftingunni og ætti enn eftir að leysa þann vanda.

„Ég er að reyna finna út úr því hvernig ég á að spila golf með hringinn. Ég sendi mælingar af fingrinum og það virðist ekki hafa skilað sér. Þegar ég svaf með hringinn vaknaði ég og það var ekkert blóð að fara út í puttann. Aftur á móti ef ég er ekki með hann á puttanum þá týni ég hringnum.“

Það er vonandi að Varner III finni út úr þessu vandamáli sem fyrst.