Fréttir

Willett kosinn kylfingur september mánaðar
Danny Willett.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 15. október 2019 kl. 08:59

Willett kosinn kylfingur september mánaðar

Englendingurinn Danny Willett var kosinn kylfingur september mánaðar á Evrópumótaröð karla.

Hinn 32 ára gamli Willett hlaut 34% atkvæða í kosningunni og vann Victor Perez naumlega sem hlaut 33% atkvæða.

Willett var í leit að sínum fyrsta titli á tímabilinu þegar hann stóð uppi sem sigurvegari á BMW PGA meistaramótinu þar sem hann lék hringina fjóra á 20 höggum undir pari og hafði betur gegn Jon Rahm á endasprettinum.

Sebastian Soderberg varð þriðji í kosningunni eftir sigur á Omega European Masters. Sergio Garcia varð fjórði og Paul Casey fimmti.