Böðvar Bragi í viðtali - Draumur að rætast
Böðvar Bragi Pálsson segir það lengi hafa verið markmið hjá sér að verða Íslandsmeistari en hann þurfti að sýna allar sínar bestu hliðar til að sigra á Íslandsmótinu í holukeppni á Hlíðavelli 20.-23. júní. Hann lék til úrslita við Aron Snæ Júlíusson og hafði betur í skemmtilegri viðureign.
Böðvar Bragi segist eiga drauma um atvinnumennsku en hann er þó í hörku háskólanámi og það tók tíma í vetur og vor og því gat hann ekki æft alveg eins mikið og hann vildi. Var orðinn heitur þegar kom að mótinu á Hlíðavelli og krækti í Íslandsmeistaratitil í holukeppni 2025.
Páll Ketilsson hjá kylfingi.is ræddi við Böðvar en þeir áttu fyrst tal saman fyrir meira en áratug þegar Böðvar var 10-11 ára. Þá vildi sá stutti koma í sjónvarpsviðtal. Ritstjórnn sagði að Böðvar yrði að eiga það inni en það kæmi örugglega að því. Þeir félagar rifjuðu þennan hitting upp og voru sammála að nú væri fréttamaðurinn að gera það sem hann lofaði fyrir löngu síðan. Hér er svo viðtalið við meistarann sjálfann, ljúfa en höggfasta kappann Böðvar Braga Pálsson.