Boeljon varði titil sinn í Tyrklandi
Christel Boeljon frá Hollandi varði titil sinn á Turkish Airways Ladies Open mótinu sem fram fór á Tyrklandi á Evrópumótaröð kvenna um helgina. Hin 24 ára gamla Boeljon lék samtals á sjö höggum undir pari og varð þremur höggum á undan Ursulu Wikstrom frá Finnlandi sem varð önnur.
Boeljon hefur leikið mjög vel í ár og er þetta annar sigur hennar á mótaröðinni í ár. „Þessi sigur skiptir mig miklu máli. Ég náði að verja titilinn og það er mikill heiður,“ sagði Boeljon þegar sigurinn var í hús.
Í myndbandinu hér að ofan má sjá samantekt frá lokahringnum í Tyrklandi en Kylfingur.is mun næstu mánuði sína samantekt frá flestum mótum á Evrópumótaröð kvenna.

Christel Boeljon hefur verið í fantaformi á Evrópumótaröð kvenna í ár.

