Caroline Wozniacki er ekki lengur undirfatamódel hjá JBS
Danska tennisstjarnan Caroline Wozniacki, sem var um tíma trúlofuð kylfingnum Rory McIlroy, hefur á undanförnum árum verið flaggskip JBS sem framleiðir undirfatnað. Þrátt fyrir gott gengi á tennisvellinum að undanförnu hafa forsvarsmenn JBS ákveðið að semja ekki á ný við Wozniacki.
Wozniacki hefur tekið þátt í því að hanna undirfatnað sem er sérhannaður fyrir íþróttanotkun og verður sú framleiðsluvara lögð til hliðar hjá JBS.
Fyrirtækið mun nú beina öllum sínum kröftum að Cristiano Ronaldo en nærfatnaður sem framleiddur er í nafni hans er vinsælasta vara JBS. Þess má geta að Ronaldo fékk áhuga á þessari framleiðslu eftir að hafa hitt Wozniacki og rætt þessi mál við hana. Ronaldo er samningsbundinn Nike fyrirtækinu líkt og fyrrum unnusti Wozniacki, Rory McIlroy.