GolfTV – Anna Sólveig: Gafst aldrei upp
„Þetta er æðislegt, geðveik tilfinning,“ segir Anna Sólveig Snorradóttir úr Keili eftir sigur sinn á Securitas mótinu sem lauk í gær á Eimskipsmótaröðinni í Vestmannaeyjum.
„Það gat hvað sem er gerst í þessum vindi og frábært að ná að halda forystunni. Ég ákvað að gefast aldrei upp og spila mitt golf. Það var gott að hafa spilað vel síðustu holurnar. Það skipti máli.“
Anna Sólveig er aðeins 18 ára gömul og er þetta hennar fyrsti sigur á Eimskipsmótaröðinni. Hún varð í öðru sæti í báðum Íslandsmótunum á síðasta ári og er bjartsýn á gott gengi í sumar.
„Sjálfstraustið vex mikið við svona sigur og ég stefni á að vera í toppnum í næstu mótum. Miðað við að ég vann þetta mót þá get ég verið í toppbaráttunni.“
Nánar má heyra í Önnu Sólveigu hér að neðan.

