Föstudagur 22. júlí 2011 kl. 13:24

GolfTV: Glæsipútt hjá konunum á fyrsta hring

Það er mikil spenna í Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru. Í kvennaflokki má búast við að hart verði barist um sigurinn. Tinna Jóhannsdóttir úr Keili setti glæsilegt vallarmet á fyrsta hring með að leika á 69 höggum eða þremur höggum undir pari. Eygló Myrra Óskarsdóttir úr Oddi lék á 70 höggum og var það hennar besti hringur í langan tíma.

Í myndbandinu hér að ofan má sjá samantekt frá keppni á fyrsta hring í kvennaflokki auk viðtala sem tekin voru í gær við þær Tinnu og Eygló.