GolfTV: Svona slærðu 120 metra með lengsta dræver veraldar
Karsten Maas frá Danmörku komst nýverið í heimsmetabók Guinness en hann hefur slegið með lengstu golfkylfu veraldar. Maas, sem er atvinnumaður í „golfbrelluhöggum“ sló upphafshögg með dræver sem er 4,4 metrar að lengd. Til samanburðar er venjuleg lengd á dræver fyrir karlmann rétt um 110 cm. Kylfan er lögleg og gæti Maas notað hana í keppni en eina kylfan sem er með „lengdartakmark“ er pútterinn en hann má ekki vera lengri en 122 cm.
Þetta er í annað sinn sem Maas kemst í heimsmetabók Guinnes en árið 2009 var hann einnig með lengstu löglegu kylfuna. Maas er ekki að dúndra boltanum langt með lengstu kylfu heims en hann er að slá um 123 metra með þessari kylfu.