Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 10. ágúst 2026 kl. 14:56

Guðrún Brá í viðtali: „Þetta var þolinmæðis golf“

Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóð uppi sem Íslandsmeistari í golfi í fimmta sinn eftir spennandi lokahring á Korpúlfsstaðavelli. Baráttan var hörð og næstu konur þjörmuðu að henni í lokahringnum en reynsla hennar og þolinmæði skilaði titlinum í hús. Páll Ketilsson ræddi við Guðrúnu Brá eftir hringinn um titilinn og hvað væri framunda.

Fimmti Íslandsmeistaratitillinn þinn í golfi. Hvernig er þessi öðruvísi en hinir? 

Er ekki alltaf sá nýjasti bestur, ætli það ekki! Þetta var vissulega mikil barátta og ég þurfti alveg að hafa fyrir þessu.“

Elsa Maren náði að jafna við þig á eftir nokkrar brautir. Fórst þú ekkert að hugsa um að spýta í þegar þær voru að þjarma að þér? 

„Ég var bara þolinmóð. Ég var ekki að spila lélegt golf – þær voru bara að gera aðeins betri hluti en ég þarna til að byrja með. Ég þurfti svolítið að setja í næsta gír eftir níu holur sem ég og gerði. Ég fann alveg að ég þurfti að spýta í en reynslan hjálpaði mér að halda ró minni.“

Varstu þú með einhverja sérstaka strategíu inn í lokadaginn? 

„Bara halda áfram að gera það sem ég var búin að vera að gera alla vikuna. Það var langmikilvægast að passa sig á því að fara ekki í eitthvað svona 'varnargolf' – um leið og maður fer í það fer maður að missa hlutina frá sér.“

Aðstæðurnar þessa fjóra daga voru vægast sagt skrautlegar. Það hefur tekið á að halda haus? 

„Já, við fengum held ég bara allt! Rigningu og logn, rigningu og rok, og svo sól og vind á lokadaginn. En þetta var bara frábært og sérstaklega gaman hvað margir mættu á lokadaginn til að fylgjast með. Það var virkilega góð stemning.“

Við verðum eiginlega að spyrja út í eitt: Pabbi þinn, Björgvin Sigurbergsson, á fjóra Íslandsmeistaratitla en nú ert þú komin með fimm. Hvað segir pabbi þinn við þessu?

„Já! Ég held að hann verði bara að fara að taka upp kylfurnar aftur og æfa sig fyrir næsta Íslandsmót!“

Hvað tekur við hjá þér núna á næstu dögum? Færðu eitthvað að fagna? 

„Heyrðu, ég er bara að fara í flug klukkan 7:20 í fyrramálið! Næsta mót hjá mér á LET mótaröðinni byrjar strax á fimmtudaginn.“

Þú ert með takmarkaðan þátttökurétt á Evrópumótaröðinni (LET). Hvernig er tilfinningin að spila ef þú miðar við sterkasta mótið hér heima? 

„Þetta er náttúrulega allt annar leikur. Vellirnir eru öðruvísi, aðstæðurnar öðruvísi og svo ertu bara að keppa við 150 ótrúlega góðar stelpur í hverju einasta móti.“

Ef þér tekst ekki að tryggja þátttökuréttinn þinn á mótaröðinni á mótunum sem eru framundan, ferðu þá í úrtökumótin í haust?

 „Já, þá þarf maður einfaldlega að vinna sig inn aftur. En vegna góðs árangurs í Suður-Afríku í fyrra er ég með pottþéttan þátttökurétt á mótunum í byrjun næsta árs. Þegar maður er atvinnumaður í golfi verður maður bara að taka eitt skref í einu. Það opnast alltaf eitthvað þegar vel gengur og svo þarf maður bara að endurskipuleggja ef hlutirnir ganga ekki upp.“

Hvernig er líf atvinnumannsins Guðrúnar Bráar?

„Það er bara alls konar! Bæði upp og niður, erfitt og gaman – og bara allt þar á milli.“

En þú ætlar heldur betur að halda áfram? „Já, að sjálfsögðu.“