Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 24. júní 2025 kl. 18:53

Heiðrún Anna - verkfræðingur verður Íslandsmeistari

Heiðrún Anna Hlynsdóttir frá Selfossi útskrifaðist sem verkfræðingur frá háskóla í Bandaríkjunum en nýtti tímann til að stunda golf af kappi. Hún hampaði nýlega Íslandsmeistaratitli í holukeppni eftir frækna frammistöðu á Hlíðavelli í Mosfellsbæ þar sem hún stóð uppi sem sigurvegari á næsta stærsta móti ársins.

Hún segir sigurinn vera langþráðan draum að rætast en hún hefur sigrað á þremur mótum á GSÍ mótaröðinni í sumar. Heiðrún jafnaði við föður sinn, Hlyn Geir Hjartarson sem hefur verið meðal bestu kylfinga landsins í áratugi en hann varð Íslandsmeistari í holukeppni 2008.

Heiðrún Anna segist stefna langt og ætlar að gera atlögu að Íslandsmeistaratitilinum í höggleik í sumar en útilokar ekki að hún reyni líka við atvinnumennsku þó hún sé í fullu starfi á verkfræðistofu á Selfossi.

Kylfingur.is fylgdist með Heiðrún í úrslitaleik mótsins gegn Pamelu Ósk Hjaltadóttur og ræddi við Selfyssinginn að sigri loknum.