Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 15. nóvember 2019 kl. 17:36

Myndband: Andri setti niður 25 metra pútt fyrir fugli

Fyrsti keppnisdagur lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröð karla fór fram í dag á Lumine golfsvæðinu á Spáni. Eins og fram hefur komið eru þeir Andri Þór Björnsson, Bjarki Pétursson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson á meðal keppenda.

Andri Þór lék fyrsta hringinn á parinu og er jafn í 80. sæti af 156 keppendum. Hann átti nokkur frábær tilþrif á hringnum en hann sló til að mynda í holu af tæplega 100 metra færi á 12. holu.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af því þegar Andri fékk fugl á 5. holu en fuglinn kom eftir um 25 metra pútt.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu. 

Eftir fjóra hringi verður skorið niður í mótinu og halda þá um 70 kylfingar áfram. Til þess að fá fullan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni þurfa strákarnir okkar að enda í einu af 25 efstu sætunum að sex hringjum loknum.