Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 15. nóvember 2019 kl. 21:05

Myndband: Bjarki fór hægt af stað á fyrsta hringnum

Bjarki Pétursson GKB lék í dag fyrsta hringinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð karla á tveimur höggum yfir pari. Fyrir vikið er Borgnesingurinn jafn í 123. sæti af 156 keppendum.

Á hringnum fékk Bjarki fjóra skolla og tvo fugla en hann ræðir nánar um hringinn við blaðamann Kylfings í viðtalinu hér fyrir neðan. Hann segist hafa verið lengi í gang en stutt er frá því að hann kláraði 5 daga úrtökumót.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu. 

Í dag léku íslensku strákarnir á Hills vellinum á Lumine svæðinu en á morgun fara þeir á Lakes völlinn. Eftir fjóra hringi verður skorið niður í mótinu og halda þá um 70 kylfingar áfram. Til þess að fá fullan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni þurfa strákarnir okkar að enda í einu af 25 efstu sætunum að sex hringjum loknum.