Þriðjudagur 24. janúar 2017 kl. 20:30

Ólafía í videoviðtali: Íslenskar aðstæður á Bahamas

„Þetta eru hálfgerðar íslenskar aðstæður hér á Bahamas, nokkuð mikill vindur. Það er bara gott fyrir mig,“ segir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir eftir annan æfingadag á sjávarvellinum á Paradísareyju á Bahamas. Ólafía er að taka þátt í sínu fyrsta móti á LPGA mótaröðinni, sterkustu kvennamótaröð í heimi kvenna í golfi.

Páll Ketilsson ræddi við Ólafíu á Bahamas og hún er hvergi bangin, hefur undirbúið sig vel þrátt fyrir að hafa farið í aðgerð á kjálka.

Ólafía á ströndinni á Bahamas. gsímynd/seth.