Miðvikudagur 7. desember 2016 kl. 15:23

Ólafía í viðtali við heimkomu: Náði að höndla pressuna

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur segir að desember sé hennar tími á golfvellinum en hún tryggði sér þátttökurétt á bestu kvennamótaröð heims í golfi, LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hún kom til Íslands í morgun og ræddi við Pál Ketilsson um lokaúrtökumótið, golfárið og það sem er framundan.