Slær með 4,3 metra löngum dræver
Michael Furrh, golfkennari frá Arlington í Texas setti merkilegt met fyrir skömmu sem gæti reynst vera heimsmet..
Michael Furrh, golfkennari frá Arlington í Texas setti merkilegt met fyrir skömmu sem gæti reynst vera heimsmet þegar upp verður staðið. Furrh sló upphafshöggi með 4,3 metra löngum dræver og er ekki vitað til þess að slegið hafi verið höggi með eins löngum dræver áður.
Fulltrúar frá Heimsmetabók Guinness voru á staðnum til að verða vitni af högginu sem er talið líklegt til að rata í heimsmetabókina á næsta ári. Golfhöggið hjá Furrh var ekkert sérstaklega langt en það fór aðeins um 130 metra sem verður þó að teljast ágætt. Þetta skemmtilega golfhögg má sjá hér að neðan.