Föstudagur 20. maí 2011 kl. 07:17

Toms áfram sjóðandi heitur – Efstur á Colonial

Bandaríski kylfingurinn David Toms sýndi og sannaði í gær að frammistaða hans í Players meistaramótinu var engin tilviljun. Hann lék fyrsta hringinn í Crowne Plaza Invitational mótinu á 62 höggum eða átta höggum undir pari og leiðir mótið ásamt Chez Reavie.

Toms lék óaðfinnanlega í gær því hann fékk átta fugla og tapaði ekki höggi. Rickie Fowler hefur mótið með krafti því hann er í þriðja sæti á sjö höggum undir pari. Leikið er á Colonial vellinum í Fort Worth, Texas og léku alls 58 kylfingar undir pari á fyrsta hring.

Svíinn Henrik Stenson gæti verið að snúa við blaðinu eftir skelfilegt gengi á tímabilinu til þessa. Hann lék á 66 höggum í gær eða fjórum höggum undir pari. Það gerðu Adam Scott og Sergio Garcia einnig. Kylfingurinn litríki, John Daly, lék fyrsta hringinn á 70 höggum eða á pari.

Staðan í mótinu