Miðvikudagur 24. júlí 2013 kl. 11:20

Valdís Þóra: Tel mig eiga ágæta möguleika á sigri

„Ég er að slá og pútta ágætlega. Völlurinn er í góðu standi þannig að ég er spennt fyrir Íslandsmótinu..

„Ég er að slá og pútta ágætlega. Völlurinn er í góðu standi þannig að ég er spennt fyrir Íslandsmótinu,“ segir Valdís Þóra Jónsdóttir, ríkjandi Íslandsmeistari kvenna í höggleik. Valdís kom nýverið heim til Íslands eftir dvöl í Bandaríkjunum. Hún er því enn að ná tökum á íslenskum golfvöllum.

„Ég er búin að leggja svolítið áherslu á flatirnar. Þær eru aðeins harðari en þær sem ég er vön að slá inn á. Ég ólst upp hérna og lærði að spila golf á Íslandi þannig að ég hlýt að kunna þetta,“ segir Valdís í léttum tón.

Hún segist ekki hugsa um þátttöku sína í Íslandsmótinu sem titilvörn. „Ég hugsa ekki um þetta sem titilvörn. Ég er að koma í nýtt mót. Það er ekki hægt að spila varnargolf. Ég ætla að gera mitt besta og tel mig eiga ágæta möguleika.“

Nánar má heyra í Valdísi í myndbandinu hér að neðan.