VefTV: Ólafía fann fyrir spennunni þegar hún sá skorskiltin
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR, hefur eins höggs forystu í kvennaflokki þegar aðeins á eftir að leika lokahringinn á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Kiðjabergsvelli. Ólafía hefur leitt mótið frá upphafi og gæti orðið Íslandsmeistari á morgun nái hún að leika vel.
Ólafía hóf hringinn vel og fékk fugl á fyrstu holu en lenti í vandræðum um miðjan hring. Hún var búin að missa efsta sætið þegar hún tók góðan endasprett og tryggði sér forystu fyrir lokahringinn. Vefsjónvarp Kylfings.is ræddi við Ólafíu og fékk hennar innsýn inn í hringinn.
Mynd/Kylfingur.is