Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Andrea eina sem komst áfram í Frakklandi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 9. október 2026 kl. 16:40

Andrea eina sem komst áfram í Frakklandi

Þrjár af fjórum golfkonum okkar eru úr leik á fimmta síðasta móti tímabilsins á LETAS-mótaröðinni í Evrópu. Andrea Bergsdóttir er sú eina sem komst í gegnum niðurskurðinn á Terre Blanche Ladies Open í Tourrettes í Frakklandi.

Niðurskurðurinn er við fjóra yfir pari og Andrea var á línunni og endaði á +4. Hún lék á pari í fyrsta hring en lék annan hringinn á fjórum yfir,  76 og er í 39.-46. sæti. Skorkortið var aftur frekar skrautlegt. Hún fékk fjóra fugla, þrjá skolla, einn tvöfaldan og einn þrefaldan þegar hún lék 11. holu sem er par 3 á sex höggum.

Hulda Gestsdóttir lék á fimm yfir í fyrsta hring og þurfti að koma inn á höggi undir pari. Hún fékk fjóra fugla á fyrstu fjórtán holunum en lék síðustu fjórar brautirnar á fjórum yfir og endaði tvö högg frá niðurskurðinum. Hulda endaði hringinn á höggi yfir pari og +6 í heildina.

Ragnhildur Kristinsdóttir endaði líka á +6 og lék báða hringina á 75 höggum. Hulda og Ragga enduðu jafnar í 62. sæti.

Höggi á eftir og jöfn í 68. sæti varð Guðrún Björgvinsdóttir. Hún lék annan hringinn á pari en var sjö yfir pari á fyrsta hring og endaði þrjú högg frá niðurskurði. Guðrún byrjaði hringinn vel og var á þremur undir pari á fyrri níu holunum en tapaði þremur höggum á síðustu sjö holunum og var þrjú högg frá niðurskurðinum.