Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Belgíski bombarinn kveður með stæl - kylfingur.is á Soudal Open
Miðvikudagur 3. júní 2026 kl. 21:08

Belgíski bombarinn kveður með stæl - kylfingur.is á Soudal Open

Það mátti heyra fagnaðarlætin um allan Rinkved golfvöllinn nálægt Antwerpen í Belgíu, þegar Nicolas Colsaert púttaði fyrir erni á fimmtu braut vallarins síðasta föstudag, í Soudal-mótinu á Evrópsku mótaröðinni, DP World tour.  

Ekki að ástæðulausu; eftir meira en tuttugu ára feril sem atvinnumaður, var Colsaert þarna að spila í sínu síðasta móti, og þúsundir belgískra aðdáenda voru mættir til að kveðja hann.  

Atvinnumannagolf er auðvitað miskunnarlaust sport og Colsaert þurfti - eins og margir aðrir - að sætta sig við að komast ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi á Soudal mótinu. En fjölskyldan gekk með honum niður átjándu brautina, og svo féllust þeir í faðma, Colsaert og Marcel Siem, gamall félagi og keppinautur, sem spilaði með honum síðasta hringinn.  

„Þetta var upp og niður hjá mér í allan dag, svona rétt eins og ferillinn hefur verið,“ sagði Colsaert við fjölmiðla eftir hringinn. „Þetta er búinn að vera skemmtilegur ferill, en allt hefur sinn enda. Ég er ekki með kraftinn í þetta lengur, en þetta var frábær tími,“ sagði Colsaert sem á margar góðar minningar af ferlinum, ekki síst þegar hann var hluti af Ryder Cup liðinu 2012 sem vann glæstan útisigur á Medinah vellinum nálægt Chicago.  

Framan af var útlit fyrir að Suður-Afríkumaðurinn Zander Lombard myndi landa sínum fyrsta sigri á mótaröðinni, eftir að hafa sjö sinnum lent í öðru sæti á undanförnum árum. Lombard gaf hins vegar eftir á lokasprettinum, og það var samlandi hans, Richard Sterne sem stóð uppi sem sigurvegari, á átján höggum undir pari (sem var reyndar skorið sem Lombard var með í upphafi lokaumferðarinnar). 

Glæsileg umgjörð 

Soudal mótið er eitt af þeim minni á DP-Evrópsku mótaröðinni - að minnsta kosti þegar litið er á verðlaunaféð; það var „aðeins“ 2,750,000 evrur eða tæpar fjögur hundruð milljónir króna, sem er talsvert minna en á mörgum öðrum álíka mótum (svo ekki sé talað um stórmótin).   

En Soudal mótið er líka eina mótið á mótaröðinni sem haldið er í Belgíu - auk Colsaerts voru þarna nokkrir aðrir belgískir atvinnukylfingar; menn eins og Thomas Detry, og það var talsvert lagt í auglýsingar í belgískum fjölmiðlum til að hvetja aðdáendur að koma á Rinkven völlinn, þó ekki væri nema til að kveðja einn dáðasta kylfing Belgíu.  

Það sem beið eftir áhorfendum var talsverður lúxus; við átjánda grínið var búið að reisa víðáttumikinn og opinn bar, þar sem hægt að horfa á síðustu púttin á 18. holu, teighögginn á tíunda teig og púttin á níundu holu einnig.  

Við hliðina á gríninu var síðan búið að koma fyrir söluskálum og kynningarbásum þar sem áhugasamir kylfingar gátu spreytt sig í golfhermum, slegið upp úr glompum, rætt um kosti og galla golfbota við fulltrúa framleiðenda - og að sjálfsögðu keypt sér merkjavöru. 

 

Ellefu til tólf á Stimpmeter  

Sá sem hér skrifar fór vissulega í golfbúðina við átjánda grínið, heimsótti aðra bása og ræddi muninn á mjúkum og hörðum boltum. En það sem var hins vegar skemmtilegast, var að fara á púttflötina sem belgíska golfsambandið hafði sett upp nálægt æfingasvæðinu; fyrir meðalgóðan kylfing eins og undirritaðann (15.2 í forgjöf), var það áhugaverð upplifun að taka nokkur pútt, horfa á boltann rúlla þetta fimm til sex metra framhjá holunni - og fá síðan þær upplýsingar að hraðinn á þessari flöt væri á milli 11 og 12 á Stimpmeter. 

„Þetta er svona álíka og keppendur eru að fást við úti á vellinum,“ sagði belgíski golfkennarinn sem hafði umsjón með þessum púttvelli og litlu æfinganetunum við hliðina, þar sem krakkarnir fengu að spreyta sig á því að slá. (Til samanburðar þá er meðalhraðinn á flötunum á íslenskum golfvöllum oft um 8.5 á Stimpmeter). 

Texti og myndir: Björn Malmquist.

Hjartnæm stund á 18. brautinni þegar Colsart var að ljúka leik.