Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Búið að opna fyrir leik í Brautarholti
Miðvikudagur 22. ágúst 2012 kl. 15:54

Búið að opna fyrir leik í Brautarholti

Nýr og glæsilegur golfvöllur á Kjalarnesi, Brautarholtsvöllur, hefur opnað og geta kylfingar nú prófað nýjasta golfvöll landsins..

Nýr og glæsilegur golfvöllur á Kjalarnesi, Brautarholtsvöllur, hefur opnað og geta kylfingar nú prófað nýjasta golfvöll landsins. Kylfingum er boðið að koma og spreyta sig á þessum nýja golfvelli sem lítur vægast sagt vel út. Völlurinn hefur hlotið vallarmat hjá Golfsambandi Íslands. Af hvítum teigum verður völlurinn 5.292 metrar, 4.888 metrar af gulum teigum og 3.978 metra langur af rauðum teigum. Í myndbandinu hér að ofan má sjá umfjöllun Kylfings.is um völlinn frá því í ágúst á síðasta ári.

Útsýni og stórbrotin náttúra auk fjölbreytts fuglalífs mun án efa heilla marga á splunkunýjum golfvelli Golfklúbbsins Brautarholts sem dregur nafn sitt af landinu sem hann stendur á. Framkvæmdir hófust í júlí 2009 og hefur mest verið unnið að gerð vallarins á sumrin. Búið er að hanna níu brautir og þær liggja í klettaborgum og í síbreytilegu sjónarspili landslags meðfram ströndinni og sumar alveg niður í fjöruborðið. Kylfingar munu fá stórbrotna náttúruna beint í æð og lagning brauta á seinni helmingi vallarins sem er að verða tilbúinn hefur tekist mjög vel. Við hönnun vallarins var haft að leiðarljósi að leggja hann í landið og hafa ósnert rými umhverfis brautir og nýta eiginleika umhverfis sem náttúrulegar hindranir. Tekin var ákvörðun um að hefja framkvæmdir á seinni níu holunum en fyrirhugað er að ljúka við 18 holur.

Edwin Rögnvaldsson hannaði grunnskipulag vallarins en Brautarholtsmenn hafa haft Michael Kelly, bandarískan golfarkitekt, sem hefur komið víða við í hönnun og lögun golfvalla víða um heim, við stjórnvölinn í vettvangshönnun og ráðgjöf við uppbygginguna. Michael hefur yfir 35 ára reynslu af hönnun og uppbyggingu golfvalla. Hann hefur komið að gerð yfir 100 golfvalla um allan heim og unnið með mörgum heimsþekktum golfvallaarkitektum. Fylgt var leiðbeiningum USGA við uppbyggingu vallar og við val á sandlagi flata. Flatir eru uppbyggðar og með vökvunarkerfi. Ellert Þórarinsson vallarstjóri hefur haldið utan um uppbygginguna. Ellert er menntaður frá Elmwood í Skotlandi og hefur starfað sem vallarstjóri hjá Golfklúbbi Akureyrar og hjá Skjeberg Golfklubb í Noregi.

Stórar flatir með miklu landslagi einkenna völlinn og þá hefur mikil vinna verið lögð í teigagerð. Á öllum brautum eru stórir og margir teigar. Öll forgjafarstig fá lengd við hæfi en allir, sama hvaða getustigi þeir eru á fá að glíma við stórar flatirnar. Mike hefur líka lagt mikla vinnu í lögun brauta og nostrað við þá vinnu á stórum tækjum sem hann er vanur að vinna á í þessu starfi sínu, víða um heim.

Mike er heimsþekktur gröfu- eða ýtukarl eða „design shaper“ þó hann sé menntaður golfvallahönnuður. Sagðist snemma hafa frekar viljað vinna við uppbyggingu og lögun vallanna en á skrifstofunni fyrir framan tölvuna.
Borgarholtsmenn segja völlinn vera í um 5 km fjarlægð frá Esjunni og sé því í svipaðri fjarlægð frá þessu þekkta fjalli og Hlíðavöllur í Mosfellsbæ og Korpan. „Það er minni vindur en á veginum undir fjallinu þannig að við höfum ekki áhyggjur af veðrinu. Aðrar vindáttir eru ríkjandi á sumrin en á vetrum og það hefur verið mikil blíða hér í allt sumar,“ sagði Gunnar aðspurður um veðrið og bætti við: „Við höfum horft til framtíðar við hönnun þessa golfvallar. Við vildum hafa hann stórglæsilegan og stefnum að því að ljúka við allar 18 holurnar á næstu árum. Hraðinn á framkvæmdum við seinni helminginn mun ráðast af móttökum gestanna.“