Hvern vantaði í Masters kvöldverðinn?
Núlifandi sigurvegarar á Masters mótinu frá upphafi nutu kvöldverðar í boði sigurvegara síðasta árs, Rory’s Mcilroy, á þriðjudagskvöldi fyrir mótið, en meðal þess sem var á matseðli kvöldsins var elgur og beikonvafðlar döðlur auk Wagu nautalundar. Rory bauð líka upp á rándýr vín en þetta mun vera dýrasti kvöldverður Masters sögunnar.
Á miðri mynd er Rory en í fremstu röð í glæstum hópi kylfinga sem hafa klæðst græna jakkanum. Athygli vekur að Tiger Woods var hvergi nærri en hann á fimm græna jakka. Kappinn lenti í veseni nýlega þegar hann velti bíl sínum. Jack Nicklaus á flesta, sex talsins.
Mótið hefst á morgun fimmtudag 9. apríl.


