Golf skilar samfélaginu yfir 31 milljarð króna á ári
Ný greining Golfsambands Íslands (GSÍ) og KPMG á samfélagslegu virði golfíþróttarinnar á Íslandi leiðir í ljós að samfélagslegt virði golfsins nemur 31,2 milljörðum króna á ári. Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og metur áhrif golfíþróttarinnar á heilsu, lífsgæði, samfélagslega velferð og efnahag segir í frétt frá GSÍ.
Greiningin var unnin í samstarfi við The Finnish Society of Sport Sciences (LTS) og byggir á alþjóðlega viðurkenndri aðferðafræði sem gerir kleift að mæla og meta samfélagsleg áhrif íþróttastarfs á sambærilegan hátt milli landa.
Vaxandi eftirspurn er eftir því meðal stefnumótunaraðila, ríkis og sveitarfélaga að skilja betur víðtæk samfélagsleg áhrif fjárfestinga, með það að markmiði að styðja við upplýsta ákvarðanatöku og markvissari nýtingu fjármuna. Rannsóknin varpar ljósi á hvernig golfíþróttin skilar verðmætum ávinningi sem nær langt út fyrir hefðbundna efnahagslega mælikvarða.
Niðurstöðurnar sýna að hver fjárfest króna í golfi skilar tveimur krónum til baka í samfélagslegu virði. Heildarútgjöld tengd golfíþróttinni voru metin á 15,7 milljarða króna á meðan samfélagslegi ábatinn nemur 31,2 milljörðum króna.
Af samfélagsvirðinu má rekja:
- 15,7 milljarða kr. til aukinnar vellíðunar og lífsgæða
- 11,7 milljarða kr. til jákvæðra áhrifa á heilsu og framleiðni
- 3,8 milljarða kr. til samfélagslegs sparnaðar
Greiningin byggir á gögnum frá 29.370 skráðum kylfingum og 1.897 svörum úr landskönnun um heilsu, hegðun og líðan. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi golfíþróttarinnar sem vettvangs hreyfingar, útivistar og félagslegrar þátttöku.
Þátttaka í örum vexti
Árið 2026 voru um 33.600 skráðir kylfingar á Íslandi, sem samsvarar tæplega tíunda hverjum landsmanni. Kylfingum hefur fjölgað um 65% frá árinu 2019, sem endurspeglar ört vaxandi þátttöku í íþróttinni.
Golf sem fjárfesting í lýðheilsu og samfélagi
Niðurstöðurnar benda til þess að golf skili verulegum samfélagslegum ávinningi sem nær langt út fyrir hefðbundna efnahagslega mælikvarða. Með reglulegri hreyfingu, útiveru og félagslegri þátttöku styður golf við bætta lýðheilsu, aukna lífsgleði og virkari þátttöku fólks í samfélaginu.
Golf sker sig jafnframt að nokkru leyti úr þegar litið er til þátttöku eftir aldri. Á meðan þátttaka í mörgum íþróttagreinum dregst saman með hækkandi aldri heldur golf áfram að laða að þátttakendur á efri árum. Því hefur íþróttin sérstakt gildi sem vettvangur hreyfingar og félagslegra tengsla fyrir breiðan hóp samfélagsins.
Greiningin sýnir að ávinningurinn birtist meðal annars í auknum lífsgæðum, jákvæðum áhrifum á heilsu og framleiðni og minni samfélagslegum kostnaði. Golf er því ekki aðeins vinsæl íþrótt heldur einnig mikilvæg samfélagsleg fjárfesting.
Golf skilar mælanlegum samfélagslegum ávinningi
Niðurstöðurnar greiningarinnar voru kynntar á fjölmennri málstofu GSÍ og KPMG þann 23. september. Þar fjölluðu meðal annars Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir lýðheilsufræðingur og sérfræðingar KPMG, Helga Garðarsdóttir og Emil Þór Ragnarsson, um áhrif golfíþróttarinnar á lýðheilsu, samfélag og efnahag.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir lýðheilsufræðingur og sérfræðingar KPMG, Helga Garðarsdóttir og Emil Þór Ragnarsson, fjölluðu um áhrif golfíþróttarinnar á lýðheilsu, samfélag og efnahag.




