Besti árangur Andreu í ár - í 3. sæti í Sviss
Andrea Bergsdóttir náði sínum besta árangri á þessu ári þegar hún varð jöfn í þriðja sæti á Lavaux Ladies Open á LET Access mótaröðinni í Evrópu en leikið var á Lavaux golfvellinum í Sviss. Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í 27. sæti og Hulda Clara Gestsdótti jöfn í 40. sæti.
Andrea lék sitt besta golf alla hringina. Hún fékk 13 fugla og einn örn á 54 holum og endaði á -10 (70-67-69)
Ragnhildur var í toppbaráttunni fram á 12. holu á lokadegi en þá var hún á sjö undir pari í heildina. Þá fékk hún þrefaldan skolla og tvo skolla til viðbótar og endaði lokahringinn á þremur yfir, (70-69-75.)
Hulda lék á +1 (73-71-73).
Hulda datt niður um tvö sæti á stigalistanum og er nú í 5. sæti stigalistans þegar fimm mót eru eftir en sjö efstu vinna sér þátttökurétt á LET á næsta ári.
Ragnhildur datt líka niður um tvö sæti og er núna í 16. sæti en Andrea vann sig upp um fimm sæti og er nú í 18. sæti. Keppnin er hörð og ljóst að það mun ekki skýrast fyrr en í lokamótinu hverjar lenda í sjö efstu sætunum. Lokamótið verður á Islantilla vellinum á Spáni sem margir Íslendingar þekkja.



