Andrea og Ragnhildur í toppbaráttunni í Sviss
Íslensku atvinnugolfkonurnar á Lavaux Ladies Open á LET Access mótaröðinni í Evrópu eru í toppbaráttunni eftir tvo keppnisdaga af þremur en leikið er á Lavaux golfvellinum í Sviss.
Andrea Bergsdóttir er jöfn í 6. sæti en hún er á sjö höggum undir pari 70-67. Hún hefur fengið níu fugla og einn örn á 36 holum.
Ragnhildur Kristinsdóttir er jöfn í 14. sæti á fimm undir pari, 70-69. Hún náði átta fuglum og einum erni en báðar hafa fengið nokkra skolla.
Hulda Gestsdóttir er jöfn í 44. sæti á parinu sem var niðurskurðarlínan með 73-71.
Forystusauðurinn í mótinu er á tíu undir pari.
Hulda er í 5. sæti stigalistans fyrir þetta mót sem er það sjötta síðasta á keppnistíðinni. Ragga er í 14. sæti og Andrea í 23. sæti.


