Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Fékk Haraldur innblástur frá tvöföldum risameistara? Lék frábært golf
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 17. september 2026 kl. 14:14

Fékk Haraldur innblástur frá tvöföldum risameistara? Lék frábært golf

Haraldur Franklín Magnús lék glæsilegt golf á fyrsta hring á Open de Portugal á Áskorendamótaröðinni, Hotel Planner Tour, í dag. Haraldur lék á fimm höggum undir pari, 66 höggum og er jafn í 7. sæti en forystusauðurinn er á sjö undir pari.

Haddi lék líklega sinn besta hring á keppnistíðinni, hann fékk fimm fugla og engan skolla.

Okkar maður hefur átt frekar erfitt uppdráttar á mótaröðinni í ár. Hann er í 160. sæti á stigalistanum og aðspurður um hvað bíði hans á næstunni sagði hann fyrir mótið að það væri óvíst.

Staðan.

Haraldur hitti engan annan en spænska tvöfalda risameistaranna José Maria Olasabal en hann var meðal þátttakenda í Pro-Am mótinu daginn fyrir mótið.

„Þetta hefur lengi verið einn minn uppahalds kylfingur enda einn besti járnaspilari sem hefur spilað golf,“ sagði Haraldur í skilaboðum til kylfings.is. Spánverjinn sigraði tvívegis á Masters og þá var hann lengi meðal lykilmanna í Ryderliði Evrópu svo fátt eitt sé nefnt.

José María Olazábal var fyrirliði Ryder-liðs Evrópu árið 2012 á Medinah Country Club í Illinois 28.–30. september 2012.

Það mót varð sögulegt: Evrópa vann 14½–13½ eftir að hafa verið 10–6 undir fyrir lokadaginn – oft kallað „Miracle at Medinah“.