Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Haraldur í 33. sæti í Portúgal
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 20. september 2026 kl. 23:11

Haraldur í 33. sæti í Portúgal

Haraldur Franklín Magnús lékk mjög gott golf og endaði jafn í 33. sæti á Open de Portugal á Áskorendamótaröðinni, Hotel Planner Tour, um helgina. Haraldur lék á þrettán höggum undir pari, og lék hringina fjóra á 66-70-67-68.

Sigurvegarinn lék á 28 höggum undir pari en skorið var lágt í Portúgal. Fimm kylfingar enduðu á tuttugu undir pari eða betur og sigurvegarinn lék á 28 undir pari sem er besta skor ársins á 72 holum.

Þetta er besta frammistaða Haraldar á keppnistíðinni, en þetta sýnir gæðin á mótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu. Aðspurður um framhaldið sagði Haraldur það óvíst. Hann er í 148. sæti stigalistans

Okkar maður hefur átt frekar erfitt uppdráttar á mótaröðinni í ár. Hann er í 160. sæti á stigalistanum og aðspurður um hvað bíði hans á næstunni sagði hann fyrir mótið að það væri óvíst. Hann er á þátttakendalista í næsta móti sem verður í Abu Dhabi um næstu mánaðarmót.