Fitzpatrick með yfir milljarð króna á einum mánuði
Englendingurinn Matt Fitzpatrick hefur unnið sér á annan milljarð króna í golfmótum á síðustu tvo mánuðum en um helgina lagði hann efsta kylfing heimslistans, Scottie Scheffler í bráðabana á RBC Heritage mótinu á PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum.
Scheffler vann upp þriggja högga forskot Englendingsins á síðustu fjórum brautunum og jafnaði við hann á lokaholunni. Þeir fóru í bráðabana á sömu 18. braut sem er mjög erfið. Þar sló Fitzpatrick magnað innáhögg með 4járni sem endaði um 3 metra frá holunni sem hann setti ofan í fyrir fugl en Scheffler átti slakt innáhögg og átti ekki möguleika á fugli. Magnað golf hjá Fitzpatrick en þetta er í annað sinn sem hann vinnur þetta mót. Hann gerði það líka í bráðabana fyrir þremur árum gegn öðrum Bandaríkjamanni, Jordan Spieh. Heimamenn studdu Scheffler vel á lokaholunum og í bráðabananum og kölluðu „U-S-A“ - „U-S-A“! en sá enski lét það ekki á sig fá og vann með stæl.
Matt sigraði á Valspar mótinu fyrir þremur vikum en vikuna á undan tapaði hann í bráðabana á Players mótinu. Hann hefur því verið sjóðheitur að undanförnu og bankastjórinn hans bara hlær.
Scheffler endaði aðra vikuna í röð í 2. sæti en hann þurfti að horfa á Rory Mcilroy vinna græna jakkann í síðustu viku. Í bæði skiptin þurfti hann að vinna upp gott forskot eftir 36 holur.


