Fréttir

Golfkastið: Masters mótið gert upp
Dustin Johnson sigraði á Masters mótinu 2020.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 20. nóvember 2020 kl. 19:29

Golfkastið: Masters mótið gert upp

Íslandsmeistararnir Sigmundur Einar Másson og Þórður Rafn Gissurarson halda úti eina hljóðvarpsþætti landsins sem fjallar um golf, Golfkastið.

Í fyrri þáttum hafa þeir meðal annars fengið atvinnukylfingana Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur og Axel Bóasson í viðtal ásamt þekktum kylfingum á borð við Örn Ævar Hjartarson, Keisarann í Hraunkoti og Úlfar Jónsson.

Í þætti gærdagsins ræddu þeir um síðasta risamót ársins í karlagolfinu, Masters mótið, og fengu blaðamann Kylfings, Ísak Jasonarson, til að ræða um allt það helsta sem átti sér stað.

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.