Fréttir

Golfklúbbur Húsavíkur sigraði í 3. deild á Íslandsmóti golfklúbba
Sigursveit Golfklúbbs Húsavíkur. Mynd: golf.is
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 18. ágúst 2019 kl. 21:32

Golfklúbbur Húsavíkur sigraði í 3. deild á Íslandsmóti golfklúbba

Golfklúbbur Húsavíkur tryggði sér sigur í 3. deild karla á Íslandsmóti golfklúbba en keppt var í Grindavík dagana 16.-18. ágúst. GH leikur því í 2. deild að ári. 

Í úrslitaleiknum hafði GH betur gegn Golfklúbbi Sauðárkróks, 2-1, og var sigurinn kærkominn fyrir klúbbinn eftir að hafa tapað naumlega úrslitaleiknum í 3. deild í fyrra.


Úrslitaleikurinn.

Golfklúbbur Fjallabyggðar hafnaði í þriðja sæti eftir að hafa sigrað Golfklúbb Hveragerðis í leik um þriðja sætið. Golfklúbburinn Geysir féll í 4. deild og skiptir því við Golfklúbbinn Flúði sem leikur í 3. deild á næsta ári.

Lokastaðan í 3. deild karla árið 2019:

1. Golfklúbbur Húsavíkur
2. Golfklúbbur Sauðárkróks
3. Golfklúbbur Fjallabyggðar
4. Golflúbbur Hveragerðis
5. Golfklúbbur Grindavíkur
6. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar
7. Golfklúbbur Borgarness
8. Golfklúbburinn Geysir.