Golfexpo
Golfexpo

Fréttir

Hélt aftur af Rory og vann sinn fyrsta sigur á PGA
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 23. febrúar 2026 kl. 17:30

Hélt aftur af Rory og vann sinn fyrsta sigur á PGA

Það eru mörg dæmi um það að sex högga forskot fyrir lokadag á PGA móti fjúki út um gluggann. Það munaði litlu hjá Bandaríkjamanninum Jackob Bridgeman sem náði að halda aftur af stórjöxlum eins og Rory Mcilroy á The Genesis mótinu á Riveria golfklúbbnum í Los Angeles í gær. Eitt högg munaði í lokin en það var nóg.

Bridgeman er nánast nýliði á mótaröðinni og það hefur reynst mörgum þungt skref að ná fyrsta sigrinum á PGA móti. Hann var með Rory í lokaholli sem var með kaldan pútter og náði því aldrei að ógna forystusauðnum verulega, fékk þó fugl á síðustu tvær og því endaði N-Írinn aðeins höggi á eftir. Fleiri blönduðu sér í toppbaráttuna í lokahringnum. Adam Scott átti verðalaunahring og Japaninn Kurt Kitaayma lék líka frábærlega.

Þegar Bidgeman stóð á 18. teig þurfti hann par. Hann fékk fínt upphafshögg og sló enn betra innáhögg á flöt, fyrra púttið skildi hann þó eftir um metra til að klára dæmið sem hann og gerði.

Það er algerlega magnað hvernig hlutirnir gerast meðal bestu kylfinga heims. Óþekktir koma til sögunnar og eiga sitt besta mót og líf þeirra breytist eftir sigur, alla vega flestra.

Lokastaðan

Jackob á lokabrautinni. Hann átti flott högg og stóðst álagi.

Það voru mörg glæsihögg á mótinu eins og þetta hjá Max Greyserman, hola í höggi