Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hægt að skrá sig á GolfBox
Golfsamband Íslands er búið að taka í notkun nýtt kerfi þar sem haldið verður um rástímaskráningu, mótahald og fleira í sumar.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
mánudaginn 2. mars 2020 kl. 14:30

Hægt að skrá sig á GolfBox

Golfsamband Íslands hefur nú gangsett nýtt tölvukerfi golfklúbbanna. Kerfið kallast GolfBox og eru golfklúbbarnir á fullu þessa dagana að innleiða kerfið hjá sér.

Eins og fram kom í frétt á föstudaginn hefur nýtt forgjafarkerfi, WHS, verið innleitt á Íslandi, samhliða gangsetningu GolfBox. 

Mikilvægt er að þeir kylfingar sem stofna aðgang að kerfinu sýni þolinmæði og átti sig á að ekki eru allir golfklúbbar búnir að setja inn í kerfið upplýsingar um sína golfvelli, rástímaskráningu eða mót.

Áætlað er að innleiðing golfklúbbanna taki einhverjar vikur í viðbót en verði lokið áður en golftímabilið hefst.

Á heimasíðu golfsambandsins er greint frá því hvernig notendur geta stofnað aðgang á GolfBox:

  1. Ferð inn á www.golf.is.
  2. Smellir á Nýskráning efst í hægra horninu.
  3. Þá opnast vefsíða GolfBox
  4. Slærð inn kennitölu og eftirnafn þitt eins og það er skrifað með íslenskum stöfum.
  5. Smellir á Leita.
  6. Ef þú ert skráð(ur) sem virk(ur) félagi í golfklúbbi í kerfinu ertu látin(n) staðfesta að þetta sért þú og flyst þá yfir á Forsíðuna þína í GolfBox.
  7. Ef upplýsingar um þig birtast ekki við leit hefurðu samband við klúbbinn þinn.

Til þess að breyta notandanafni, lykilorði og netfangi er hægt að gera eftirfarandi:

  1. Smellir á Breyta prófílnum.
  2. Neðarlega á síðunni smellir á Breyta notandanafni og aðgangsorði >.
  3. Slærð inn nýtt notandanafn og lykilorð.
  4. Slærð inn farsímanúmer og netfang.
  5. Smellir á Uppfæra >.

Hér fyrir neðan má svo sjá hjálparmyndband við nýskráningu: