Góð byrjun hjá þeim íslensku í Frakklandi
Íslensku golfkonurnar á LET Access mótaröðinni í Evrópu eru við leik í Frakklandi og er Hulda Clara Gestsdóttir jöfn í 11. sæti eftir fyrsta hring.
Hulda lék ótrúlega jafnt og gott golf og fékk sautján pör og einn fugl, 71. högg.
Ragnhildur Kristinsdóttir er jöfn í 30. sæti á +1, 73 högg. Hún fékk tvo skolla og einn fugl.
Andrea Bergsdóttir er á +2 í 43. sæti. Hún fékk tvo fugla, tvo skolla og einn tvöfaldan skolla.


