Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Haraldur á fjórum undir í Eistlandi fyrir lokadaginn
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 1. ágúst 2026 kl. 16:34

Haraldur á fjórum undir í Eistlandi fyrir lokadaginn

Haraldur Franklín Magnús hefur leikið fínt golf á Infortar Estonian Challenge mótinu á HotelPlanner mótaröðinni í Eistlandi.

Haraldur er á fjórum höggum undir pari eftir 54 holur af 72. Hann lék fyrsta hringinn á höggi undir pari, annan á fimm undir en þriðja á tveimur yfir og er því á -4 og jafn í 49. sæti, 71-67-74 höggum.

Andrew Wilson frá Englandi leiðir mótið á -15, höggi á undan Skotanum Rory Franssen sem er á -14.