Hugrænu aðferðirnar sem hjálpuðu Ryan Fox að vinna Opna breska meistaramótið
Ryan Fox og PGA-meðlimurinn Karl Morris hafa skipst á hundruðum símtala og skilaboða en símtalið að kvöldi sunnudagsins 19. júlí var sérstaklega eftirminnilegt: Viltu keyra aftur til Royal Birkdale og fagna með nýjum sigurvegara Opna mótsins?
Í mjög áhugaverðum pisli á heimasíðu PGA (The Professional Golfers Association) fer Karl Morris, sem lengi hefur verið frammistöðu- og hugarþjálfari margra atvinnukylfinga yfir samstarf sitt og Nýsjálendingsins Ryan Fox, en hann sigraði á OPNA mótinu í júlí í sumar, The Open, á Royal Birkdale vellinum í Englandi. Hér er þýðing á pistlinum:
Í sjö ár hefur Morris verið frammistöðu- og hugarþjálfari Nýsjálendingsins og nú gátu þeir skálað hvor fyrir öðrum úr Claret Jug-bikarnum.
Morris, sem stóð einnig að baki sigri Louis Oosthuizen á Opna mótinu á St Andrews árið 2010, hafði verið með Nýsjálendingnum á Opna skoska mótinu vikuna áður og frá mánudegi til miðvikudags í vikunni sem Opna mótið fór fram, en hann þurfti að fylgjast með úr sófanum, eins og við hin, þegar hinn 39 ára gamli kylfingur átti eina af bestu helgum í sögu risamóta í golfi.
Á laugardeginum lék Fox á 62 höggum, aðeins í áttunda sinn sem það hefur gerst í sögu risamótanna. Hann fylgdi því eftir með jafn glæsilegum hring upp á 68 högg þar sem hann náði Cam Young með fjórum fuglum – og einum eftirminnilegasta skolla allra tíma – á síðustu sex holunum.
Hér fer Karl yfir þau verkfæri sem hjálpuðu Fox að verða einn vinsælasti sigurvegari Opna mótsins á síðari árum.
Hvernig samstarf Fox og Morris hófst
Við byrjuðum fyrir sjö árum. Umboðsmaður hans, Ian Keenan, var góður kylfingur og hann hafði samband og sagðist vera með efnilegan kylfing frá Nýja-Sjálandi og spurði hvort ég væri til í að spjalla við hann. Okkur kom strax vel saman og við eyddum miklum tíma í að ræða aðrar íþróttir, enda lék faðir hans, Grant, með All Blacks og afi hans var öflugur krikketleikmaður. Hann var mjög opinn frá fyrsta degi. Við höfum talað saman nánast í hverri viku síðan og hittumst í eigin persónu um sex sinnum á ári.
Fyrsta skiptið var eins og best verður á kosið. Ég þjálfa frá Delamere Forest, sem er frábær völlur, og við gátum farið út, gengið nokkrar holur, og þannig vinn ég yfirleitt með kylfingi þegar ég hitti hann í fyrsta sinn, fjarri móti. Það er í raun þar sem áætlunin mótast og þar eru kylfingar mun hreinskilnari og minni pressa á að finna skyndilausn fyrir þá vikuna, sem ég held að sé auðvelt að falla í þegar maður er á mótaröðinni.
Í grunninn er Ryan einfaldlega góð manneskja og ég held að mjög mikið af því komi frá uppruna hans. Þetta hefur verið mjög jöfn framþróun. Hann vann fjórum sinnum á DP World Tour, svo tvisvar á PGA-mótaröðinni og nú risamót, svo hann sló svo sannarlega ekki í gegn á einni nóttu. Hann hefur einfaldlega þokast áfram smám saman.
Einfalda hugmyndin sem veitti Fox skýrleika
Það sem við höfum helst skoðað síðustu tvö árin, og það hljómar svo augljóst og einfalt, er að skapa aðstæður þar sem þetta snýst um Ryan Fox gegn vellinum.
Innan þess, og við hljótum að hafa átt þessa umræðu milljón sinnum, er skýrleikinn. Þegar hann veit nákvæmlega hvað hann ætlar sér með höggið getur snilligáfa líkamans tekið við.
Fyrsta samtalið sem ég átti á mánudeginum á Birkdale var við Ryan og kylfusvein hans, Dean Smith, og þeir sögðu að það hefði ekki gengið neitt sérstaklega vel að ákveða hvaða högg ætti að slá. Við fengum þá hugmynd að Dean myndi bara gefa honum hörð gögn – 193 að holu, vindur frá hægri – og Ryan þyrfti síðan að segja Dean upphátt hvaða högg hann ætlaði að slá. Þeir sköpuðu skýrleika en Ryan bar fulla ábyrgð á högginu. Ég kalla þetta hið illgrípanlega augljósa því það er svo augljóst en við gerum það samt ekki nema sjaldan.
Ef höggið er síðan lélegt er það framkvæmdarvilla, sem leiðir að hinu sem við höfum rætt í fimm ár – sátt.

Af hverju nógu gott er oft nógu gott
Aftur, einfalt orð en gríðarlega stórt viðfangsefni. Vandinn við golf er að við spilum það og afneitum raunveruleika leiksins. Ég læt fólk gera æfingu sem kallast 1, 2 og 3. Þar sem 1 er gott högg, 2 er nógu gott og 3 er lélegt högg.
Ég læt fólk gera æfingu þar sem það ímyndar sér besta hring sinn síðustu fimm árin. Síðan reiknar það út hve margir þristar voru samt í honum og nánast allir nefna á bilinu fimm til 15.
Ég kalla þetta fyrirframsátt – það hljómar neikvætt en er það ekki. Ef þú gefur þér ákveðinn fjölda þrista fyrir hring, t.d. sex eða sjö, þá er fegurðin sú að fíllinn er farinn úr herberginu. Þegar þristarnir koma ertu þegar búinn að ákveða fyrirfram að það muni gerast.
Það sem gerist hjá öllum góðum kylfingum er að þeir eiga í skelfilegu sambandi við tvistana. Þeir hitta boltann með hælnum og hann lendir á brautinni, það er nógu gott, en margir góðir kylfingar líta á það sem þrist og þá er hvert högg annaðhvort 1 eða 3. Þú sveiflast því stöðugt á milli ánægju og sjálfsfyrirlitningar af því að þú viðurkennir ekki tvistana.
Þegar þú getur raunverulega viðurkennt tvistana sem eitthvað jákvætt – það er ekki gott högg en það er nógu gott – þá opnast nýr heimur því þú ert ekki lengur að afneita raunveruleika golfsins.
Hringurinn upp á 62 sem breytti öllu
Ryan veit að leikur hans er í góðu standi þegar hann fer að sjá upphafslínuna sína. Hann kýs að slá með hægri sveigju, „fade“-högg oftast og ef upphafslínan er nokkuð góð, örlítið til vinstri og svo fellur boltinn til hægri, má sjá sjálfstraustið vaxa hjá honum.
Ég hef aldrei sagt að færni skipti ekki máli. Færnin að koma boltanum af stað þangað sem maður vill er færni sem ég held að of fáir kylfingar gefi gaum og Ryan tókst þá að skapa þessa skýrleika yfir hverju einasta höggi.
Hann sagðist hafa spilað mjög vel á öðrum hring, upphafslínurnar voru góðar og hann var farinn að bregðast miklu betur við vellinum og svo kom auðvitað laugardagurinn.
Á mánudeginum vorum við að ganga völlinn og það reyndist undarlegur spádómur. Ryan var að slá langt glompuhögg og þjálfarinn hans, Marcus Wheelhouse, hafði orð á því að hann væri kannski besti leikmaður heims í löngum glompuhöggum. Eitthvað í tækni hans gerir honum kleift að skara fram úr í einmitt þessu höggi og svo sló hann annað höggið á 18. holu úr sandinum, sem var besta golfhögg sem ég hef séð. Ég veit að ég er hlutdrægur en að hitta flötina af 193 jarda færi var ótrúlegt og lagði í raun grunninn að lokahringnum.
Engar sögur, bara höggið fram undan
Þema sem við höfum unnið með lengi er hugmyndin um „engar sögur“. Hún felur í sér að í hvaða aðstæðum sem er á golfvellinum ertu á öðrum hvorum staðnum. Annaðhvort ertu að búa til sögu eða það sem við köllum „svona er þetta bara“. Þú gætir verið úti að spila og gott teighögg endar í kylfufari. Þá geturðu valið um að fara inn í sögu um hvað þú ert óheppinn og að þetta gerist alltaf hjá þér, eða að svona sé þetta bara.
Á 15. holu sló Ryan frábært teighögg sem endaði nokkrum sentímetrum frá því að vera fullkomið og skildi hann eftir í glompu án nokkurs höggs. Það augnablik undirstrikaði „engar sögur“ í þeim skilningi að hann kom að boltanum – Dean var frábær í þeim aðstæðum – hafði skýrleika og vann sig aftur á bak frá holunni. Það endaði síðan í einum besta skolla sem sést hefur í stórmóti í golfi, jafnvel nokkurn tímann. Ryan bjó ekki til sögu – hann tókst bara á við raunveruleikann.
Sóknargolf: að velja hugrekki fram yfir varkárni
Við Ryan höfum talað mikið um athygli. Á hvað ætlar þú að beina athyglinni? Þegar þú ert úti að spila beinist hún annaðhvort að einhverju gagnlegu eða gagnslausu. Þetta var enn Ryan gegn vellinum en svo skilaði Cam Young inn 64 höggum og endaði á -9, svo þetta var að verða erfiðara. Cam á ekki eftir að slá fleiri slæm högg og völlurinn er að verða erfiðari, en Ryan þarf samt að fara út og sigra völlinn.
Hitt þemað sem við höfum unnið lengi með er munurinn á sóknargolfi og forðunargolfi. Við höfum öll fallið í þá gildru að spila forðunargolf, þar sem við reynum að forðast ákveðið teighögg eða glompuhögg, og við eigum öll okkar eigin litla erkióvin.
Hugmyndin, sem tengist sátt, er að vera með á hreinu hvaða högg þú ætlar að slá og sækjast svo einfaldlega eftir því góða höggi. Þarna skiptir sáttin svo miklu máli – þú getur aðeins sóst eftir góðu höggunum ef þú ert tilbúinn að sætta þig við þau slæmu.
Teighöggið á 18. holu á sunnudeginum dró þetta allt saman, þegar Ryan sagði við Dean að hann ætlaði að slá með dræver, vitandi að það gæti þýtt skolla, en reynum að vinna þetta frekar en að sætta okkur bara við bráðabana.
Samlíkingin mín um þetta teighögg á 18. holu á Birkdale var að ímynda sér að þú þyrftir að slá teighögg niður heimkeyrsluna þína í vindi frá vinstri til hægri – þetta var fullkomið dæmi um sóknargolf frekar en forðunargolf.
Hvað þjálfarar geta lært af tímamótum Fox
Ef einhver vill bæta sig í golfi þarf hann að gera tvennt – hann þarf að þróa ákveðna færni í leik sínum og hann þarf að geta nýtt sér færnina.
Við höfum einblínt mikið á sveifluna eina og sér, en sveiflan er ekki færnin. Frammistöðuþjálfun, og það að nýta færnina, er þar sem hægt er að byggja upp frábært samband við leikmanninn á einstaklingsgrundvelli. Kannski munu fleiri þjálfarar í framtíðinni verja meiri tíma úti á velli í kennslustundum sínum. Kannski verður algengara að fara með tvo eða þrjá saman í hóp út á völl og sjá hvers vegna einhver nær ekki að nýta færni sína á vellinum.
Svo ég viti til erum við eina íþróttin þar sem þjálfarinn sér leikmanninn hugsanlega aldrei stunda íþróttina. Geturðu ímyndað þér knattspyrnustjóra sem horfir aldrei á liðið sitt spila og spyr svo á mánudagsmorgni hvernig gekk á laugardaginn?
PGA-golfkennarar hafa gríðarleg tækifæri til að vinna með leikmönnum sínum á ólíkan hátt og það er mjög spennandi.
Páll Ketilsson tók viðtal við Karl Morris sem birtist í Golf á Íslandi 2011 en Páll sótti námskeið tvö ár í röð hjá Morris sem hann hélt í Manchester. Hér má sjá viðtalið í blaðinu.
Hér að neðan er hlaðvarpsviðtal við Morris hjá Youtube-kylfingnum Rick Shields en það birtist eftir sigurinn hjá Fox.



