Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hverjir eru 10 bestu kylfingar heims án risatitils?
Miðvikudagur 10. febrúar 2010 kl. 18:06

Hverjir eru 10 bestu kylfingar heims án risatitils?

Það eru margir kylfingar sem eiga sér þann draum heitastan að standa uppi sem sigurvegari á risamóti. Margir frábærir kylfingar í fremstu röð deila þeim draumi enda eru margir þeirra án risatitils.

Það er jafnan farið yfir það á ári hverju, hverjir séu tíu bestu kylfingar heims sem ekki hafa unnið sér inn risatitil. Nú er svo komið að kylfingurinn Steve Stricker er sá besti sem ekki hefur unnið sér inn risatitil. Hann er kominn í annað sætið á heimslistanum í golfi og hefur verið einstaklega heitur undanfarna mánuði.

Sergio Garcia er á nokkuð hraðri niðurleið á bæði heimslistanum og á lista yfir þá kylfinga sem aldrei hafa hampað risamótssigri. Hann er dottinn niður í 6. sæti en var efstur á listanum sem var gefinn út árið 2008. Golf.com tók saman þá tíu bestu og spáði fyrir hvenær væri líklegt að fyrsti risasigurinn myndi koma.

1. Steve Stricker
Nr. 5 á 2009 listanum
Heimslistinn: 2
Sigrar: 8
Líklegur risasigur: 2010 U.S. Open, Pebble Beach

2. Lee Westwood
Nr. 4 á 2009 listanum
Heimslistinn: 4
Sigrar: 21
Líklegur risasigur: 2010 PGA Championship, Whistling Straits

3. Martin Kaymer
Nr. 7 á 2009 listanum
Heimslistinn: 6
Sigrar: 5
Líklegur risasigur: 2011 Masters

4. Kenny Perry
Nr. 1 á 2009 listanum
Heimslistinn: 13
Sigrar: 14
Líklegur risasigur: 2009 Masters (Mótið sem Perry átti að vinna en kastaði frá sér sigrinum)

5. Rory McIlroy
Nr. 10 á 2009 listanum
Heimslistinn: 7
Sigrar: 1
Líklegur risasigur: 2011 British Open, Royal St. George's

6. Sergio Garcia
Nr. 3 á 2009 listanum
Heimslistinn: 15
Sigrar: 18
Líklegur risasigur: 2010 British Open, St. Andrews

7. Henrik Stenson
Nr. 6 á 2009 listanum
Heimslistinn: 9
Sigrar: 8
Líklegur risasigur: 2011 U.S Open, Congressional

8. Paul Casey
Nr. 2 á 2009 listanum
Heimslistinn: 8
Sigrar: 11
Líklegur risasigur: 2011 PGA Championship, Atlanta Athletic Club

9. Ian Poulter
Ekki á 2009 listanum
Heimslistinn: 11
Sigrar: 9
Líklegur risasigur: 2011 British Open, Royal St. George's

10. Anthony Kim
Ekki á 2009 listanum
Heimslistinn: 27
Sigrar: 2
Líklegur risasigur: 2012 Masters

Myndir/golfsupport.nl

[email protected]