Tvö draumahögg í vel heppnaðri golfferð GKG til Islantilla
„Þetta hefur verið frábær ferð! Dálítið „Leirulogn“ fyrstu dagana en með svona frábærum hóp kylfinga og á svona stað, þá skiptir það engu máli“ segir Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Meðlimir klúbbsins eru á heimleið eftir vel heppnaða golfferð til Islantilla á vegum Icelandair VITA og Peter Salmon Golf en gist er á DoubleTree by Hilton-hótelinu.
Tveir meðlimir GKG, þau Gunnlaugur Björnsson og Elín María Sigurðardóttir, náðu heldur betur að láta drauminn rætast í ferðinni þegar þau slógu hvort um sig hið eftirsótta draumahögg – holu í höggi. Elín María fór holu í höggi á þrettándu braut vallarins en Gunnlaugur á þeirri fimmtándu.
Draumahöggin gleymast seint
Að slá holu í einu höggi er augnablik sem flestir kylfingar eltast við alla sína ævi, en fáir upplifa. Þetta er fullkomin blanda af nákvæmni, tilfinningu og dass af heppni – augnablik þar sem allt smellur saman. Gunnlaugur og Elín María eiga því seint eftir að gleyma þessari ferð en samkvæmt heimildum Kylfings á það þó við um allan hópinn enda er það mál klúbbmeðlima GKG að hún hafi heppnast einstaklega vel.
Völlurinn á Islantilla er vel þekktur meðal kylfinga, enda samanstendur hann af þremur níu holu völlum sem hægt er að spila í mismunandi samsetningum. Þessir vellir hafa í gegnum árin fengið mikið lof fyrir fjölbreytileika, áskoranir og góða umhirðu – og halda áfram að standa undir því orðspori.
Agnar Már er þó ekki einn að sjá um hópinn, enda eru um 90 kylfingar frá GKG í ferðinni. Með honum, líkt og undanfarin ár, er einn af bestu kylfingum Íslandssögunnar, Úlfar Jónsson.
Fjórir Íslandsmeistarar í fararstjórn
Úlfar varð Íslandsmeistari aðeins 17 ára gamall árið 1986 og er enn þann dag í dag yngsti karlmaðurinn til að vinna titilinn. Á árunum 1986 til 1992 bætti hann við sig fimm titlum til viðbótar og varð því alls sex sinnum Íslandsmeistari á því tímabili. Því skal þó haldið til haga að Úlfar er ekki eini Íslandsmeistarinn í þessari ferð því báðir fararstjórar GKG eru Íslandsmeistarar – Úlfar í golfinu og Agnar Már í ólympískum lyftingum.
En bíðið hæg, það eru ekki einu Íslandsmeistararnir í ferðinni, því þeim til halds og trausts eru einnig tveir aðrir Íslandsmeistarar og það í golfíþróttinni, þeir Gylfi Kristinsson og Ragnar Ólafsson. Gylfi var um tíma sá yngsti sem hafði unnið Íslandsmeistaratitilinn, allt þar til Úlfar sló það met. Sá sigur Gylfa kom árið 1983. Á þessum árum mættust þeir félagar oft í keppni og voru iðulega saman í síðasta holli Íslandsmótsins. Ragnar varð Íslandsmeistari árið 1981 og er því ljóst að þeir þekkjast vel eftir áralanga keppni á sama vettvangi.
Sundlaugarpartí, sól og golf
Í dag starfa Gylfi og Ragnar sem fararstjórar hjá Icelandair VITA og Peter Salmon Golf. Þeir hafa víðtæka reynslu af Islantilla, þar sem þeir hafa um árabil sinnt fararstjórn og kynnst svæðinu afar vel.
Þeim til halds og trausts er skemmtanastjóri ferðarinnar og nýjasta viðbótin við fjölbreytt teymi Icelandair VITA og Peter Salmon Golf en það er sonur Gylfa, Atli Már. Sá hefur slegið í gegn sem fararstjóri en hann hélt fyrsta sundlaugarpartí í sögu DoubleTree by Hilton-hótelsins fyrir GKG-hópinn.
„Það er alltaf gaman að fara í svona ferðir á vegum Peter Salmon Golf. Við höfum gert það í mörg ár og hafa meðlimir GKG alltaf borið þeim söguna vel enda þótt við séum búnir að skipuleggja okkar hluta að þá er allt upp á 10 sem snýr að þeim, hótelinu, aðstöðunni og öllu fyrirkomulagi á staðnum,“ segir Úlfar.

1. brautin á Islantilla.



